Sjúkraflug TF-SIF vegna tveggja alvarlegra slysa

29. maí, 2003

Föstudagur 30. maí 2003.Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gær og óskaði eftir þyrlu vegna manns sem hafði fallið af pramma á Breiðarfirði. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út, nánar tiltekið kl. 18:17, og fór TF-SIF í loftið kl. 18:40. Er þyrlan var rétt ókomin á slysstað, kl. 19:06, var hún afturkölluð þar sem maðurinn hafði verið úrskurðaður látinn.Um það leyti sem þyrlan var afturkölluð barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð vegna bílveltu á Möðrudalsöræfum þar sem þrjú ungmenni höfðu slasast. Þá var breytt um stefnu og lenti þyrlan á þjóðveginum við slysstað kl. 20:35. Þyrlan fór síðan aftur í loftið kl. 21:02 með ungmennin innanborðs og lenti með þau á Akureyri kl. 21:36 þar sem þau voru flutt á sjúkrahús. TF-SIF lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 23:59.Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir