
Laugardagur 31. maí 2003.
Flugmálastjórn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:25 í dag og tilkynnti um neyðarsendingar 38 sjómílur vestur af Bjargtöngum. Stuttu síðar hættu sendingarnar að heyrast. Upplýsingar um þetta voru sendar til varðskips sem sigldi þegar í átt að staðnum. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og Tilkynningarskyldunnar voru engir bátar á siglingu á þessu svæði.
Björgunarsveitin Björg á Rifi sendi björgunarskip á svæðið og fann þar tvo menn á plastbáti sem var orðinn olíulaus. Mennirnir höfðu ætlað að sigla frá Breiðuvík til Grundartanga. Björgunarskipið Björg fylgdi þeim til hafnar og var Sjóslysanefnd upplýst um málið.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands