Slasaður skipverji um borð í þýska togaranum Kiel sóttur út á Reykjaneshrygg í nótt

3. júní, 2003


Þriðjudagur 3. júní 2003.


 


Rétt fyrir miðnætti í gær hafði Reykjavíkurradíó samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti um slys um borð í þýska togaranum Kiel sem var að karfaveiðum á Reykjaneshrygg, 250 sjómílur frá Reykjavík.  Skipstjóra var gefið samband við vakthafandi lækni á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss sem taldi nauðsynlegt að sækja manninn með þyrlu þar sem hann var fótbrotinn með opið beinbrot.


 


Slysið átti sér stað er skipverjar voru að hífa trollið inn og maðurinn fékk hlerann í fótlegginn.  Skipstjórinn fékk fyrirmæli um að halda með mestu ferð í átt að Reykjanesi.


 


Öryggisins vegna var ákveðið að senda bæði þyrluna TF-LIF og flugvélina TF-SYN til fylgdar.  Vélarnar voru komnar að skipinu um kl. 3:08 og var maðurinn hífður um borð í þyrluna í börum.  Því var lokið kl. 3:20 og þyrlunni flogið til baka til Reykjavíkur. 


 


TF-LIF lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 5:27.  Þar beið sjúkrabíll sem flutti slasaða skipverjann á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.  TF-SYN hafði lent á Reykjavíkurflugvelli hálftíma áður.


 


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi


Landhelgisgæslu Íslands


 


 

Fleiri Fréttir