
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 8. júní 2003.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti kl. 13:32 við Landspítala Háskólasjúkrahús með mann og konu sem höfðu slasast í bílveltu á Arnarstapa.
Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 11:56 eftir að lögreglan á Ólafsfirði tilkynnti um slysið. Þyrlan fór í loftið kl. 12:25 og lenti við félagsheimilið á Arnarstapa kl. 12:52. Þá var búið að búa um manninn í sjúkrabifreið á staðnum en konan var minna slösuð. Þau voru bæði flutt með þyrlunni á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi þar sem lent var kl. 13:32.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands