
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 12. júní 2002.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk upplýsingar frá lögreglunni í Ólafsvík kl. 19:40 um að kona hefði slasast eftir bílveltu á Fróðárheiði. Áhöfn TF-SIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 20:06.
Konan var farþegi í jeppabifreið sem valt nokkrar veltur. Eiginmaður hennar sem var ökumaður jeppans slapp nánast ómeiddur.
Er þyrlan kom á staðinn kl. 20:35 var búið að búa um konuna í sjúkrabíl. Hún var flutt með þyrlunni á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi þar sem lent var kl. 21:24.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands