Fluttur með þyrlu eftir vinnuslys í Ólafsvík

19. júní, 2003

Fimmtudagur 19. júní 2003.


Um kl. 11:54 var haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna manns sem hafði slasast á hendi við vinnu sína í fiskiðjuveri á Ólafsvík.  Óskað var eftir þyrlu til að sækja hann og flytja á sjúkrahús í Reykjavík.


Þyrluáhöfnin var kölluð út kl. 11:56 og fór TF-SIF í loftið kl. 12:35.  Lent var á Rifi kl. 13:10 og haldið þaðan kl. 13:15. Þyrlan lenti með hinn slasaða við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 13:44.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir