TF-SIF sótti slasaðan dreng í Reykjadal

23. júní, 2003

Mánudagur 23. júní 2003Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í kvöld 14 ára dreng sem hafði fallið ofan í hver í Reykjadal ofan Hveragerðis og hlotið brunasár á höndum og fótum.  Drengurinn var í hópi fólks sem hóf gönguferð efst í Kömbunum og stefndiþaðan inn í Reykjadal. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu kl. 20:04.  Áhöfn TF-SIF var þegarkölluð út. Kl. 20:12 var beðið um þyrlu á staðinn.  TF-SIF fór í loftið kl.20:34 og var komin á slysstað kl. 20:48.  Lent var við flugskýliLandhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll kl. 21:10 þar sem sjúkrabíllbeið hins slasaða og flutti á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands


 

Fleiri Fréttir