Togari staðinn að meintum ólöglegum veiðum

11. ágúst, 2003

Mánudagur 11. ágúst 2003.


Í gærkvöldi stóð varðskipið Ægir togara að meintum ólöglegum veiðum á Stokksnesgrunni en skipið var þar að togveiðum án þess að varpan væri búin smáfiskaskilju.


Skipherra gaf skipstjóra togarans fyrirmæli um að halda til hafnar á Eskifirði þar sem málið var tekið fyrir hjá sýslumanni.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi


 

Fleiri Fréttir