
Miðvikudagur 13. ágúst 2003.
Vegna sumarleyfa hefur fréttavefur Landhelgisgæslunnar ekki veirð virkur frá 11. júlí sl. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur séð um að veita fjölmiðlum upplýsingar. Eftirtalin neyðartilvik og önnur atvik hafa komið upp á tímabilinu:
14. júlí 2003. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti veikan sjómann um borð í Frosta ÞH-229 og flutti á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
15. júlí 2003. Umferðarslys skammt frá Húsafelli. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flutti slasaða konu á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
17. júlí 2003. Tilkynnt um lítilsháttar leka um borð í bátnum Bárði SH-81 sem staddur var út af Snæfellsnesi. TF-SIF í grennd og kannaði hvort nauðsyn væri á aðstoð. Svo reyndist ekki vera.
17: júlí 2003. Tilkynnt um sprengiefnastuld. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kallaðir út.
20. júlí 2003. TF-SIF send af stað vegna alvarlega slasaðs drengs á Selfossi. Hann var látinn er þyrlan lenti þar.
21. júlí 2003. Maður fann torkennilegan hlut í Héraðsflóa. Taldi að um handsprengju væri að ræða. Sprengjusérfræðingjar kallaðir út.
24. júlí 2003. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, send til leitar að konu sem hafði orðið viðskila við gönguhóp í nágrenni Trölladyngju. Konan kom fram á Reykjanesbraut nokkrum klukkustundum síðar.
28. júlí 2003. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti nýfætt barn og foreldra þess til Vestmannaeyja og flutti til Reykjavíkur þar sem barnið þurfti að komast á sjúkrahús án tafar.
31. júlí 2003. Kona fótbrotnaði er hún féll af hestbaki í Þjófadal á Kili. Óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja hana þar sem ekki var bílfært á svæðið. Konan flutt til Reykjavíkur og færð á sjúkrahús.
1. ágúst 2003. Ungabarn brenndist illa á hendi í Skáleyjum á Breiðafirði. TF-SIF flutti móður og barn til Reykjavíkur þar sem barnið fékk meðhöndlun á slysadeild.
2. ágúst 2003. Rútuslys í Skorradal. TF-LIF flutti eina konu á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
3. ágúst 2003. Alvarlega veik kona um borð í farþegaskipinu Black Prince. Skipið á leið til Reykjavíkur. Konan flutt með TF-SIF á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
5. ágúst 2003. Skipverji um borð í togaranum Akureyrinni slasaðist á auga. TF-LIF sótti hann og flutti til Reykjavíkur þar sem hann var færður á sjúkrahús.
7. ágúst 2003. TF-LIF sótti slasaðan rútubílstjóra sem hafði velt rútunni við vaðið á Sandá á Kjalvegi. Hann var fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
7. ágúst 2003. TF-SIF