
Fimmtudagur 14. ágúst 2003.
Lögreglan á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:10 og tilkynnti að leit væri hafin að litlum bát með utanborðsmótor sem haldið hafði frá Sellátrum við Patreksfjörð um kaffileytið í gær. Talið var að einn maður á áttræðisaldri væri um borð.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 15:15 og fór TF-SIF í loftið kl. 15:53. Rúmum hálftíma síðar tilkynnti lögreglan á Patreksfirði að báturinn væri fundinn mannlaus u.þ.b. 900 metrum innan við Blakksnes, undir Hænuvíkurhlíð.
Um kl. 17:55 fann áhöfn TF-SIF manninn sem saknað hafði verið. Hann fannst í grennd við bátinn og var látinn er að var komið. Áhöfnin lét lögreglu vita.
Björgunarsveitarmenn, lögregla og þrír bátar komu að leitinni auk þyrlu Landhelgisgæslunnar og áhafnar hennar.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands