
Þriðjudagur 19. ágúst 2003.
Þrír menn voru hætt komnir í Efstadalsvatni í Laugardal í Ísafjarðardjúpi í nótt en áhöfn TF-LIF tókst að bjarga þeim.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 23:38 í gærkvöldi og gaf samband við lögregluna á Ísafirði sem tilkynnti að báti hefði hvolft á Efstadalsvatni í Laugardal með a.m.k. tveimur mönnum um borð.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út, bráðaútkall, og fór hún í loftið kl. 0:07. Þá hafði lögreglan á Ísafirði látið vita að tveir menn væru á kili bátsins og þeir héldu í þann þriðja. Lögregla, sjúkrabíll og björgunarsveitir voru einnig á leið á staðinn.
Orðrétt segir í fréttatilkynningu lögreglunnar á Ísafirði: ,,Var beðið komu þyrlunnar og björgunarsveitarmanna. Þyrlan kom fyrr á vettvang, eða klukkan 1:13 og bjargaði mönnum úr vatninu. Mátti ekki tæpara standa þar sem maðurinn, sem var í vatninu, var að gefast upp. Þyrlan lenti á Ísafjarðarflugvelli klukkan 1:40 og voru mennirnir fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Tveir mannanna voru það vel á sig komnir að þeir máttu yfirgefa sjúkrahúsið eftir skoðun, en sá þriðji var lagður inn svo hann mætti jafna sig.“
Áhöfn TF-LIF notaði nætursjónauka við björgunina og skipti það sköpum.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands