Landhelgisgæslan heldur æfinguna Northern Challenge, æfingu sprengjueyðingarsveita

25. ágúst, 2003

Mánudagur 25. ágúst 2003.


Á morgun hefst æfing sprengjueyðingarsveita frá Íslandi, Bandaríkjunum og Danmörku sem kallast Northern Challenge.   Landhelgisgæslan skipuleggur og stjórnar æfingunni með stuðningi frá Varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins og stendur hún til fimmtudagsins 28. ágúst nk.


Æfingin er haldin í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli en þetta er í annað skipti sem Northern Challenge æfingin er haldin.  Markmiðið með henni er að þjálfa sprengjusérfræðinga í að eyða hryðjuverkasprengjum og fer hún fram samkvæmt NATO – stöðlum.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands


Fleiri Fréttir