
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 27. ágúst 2003.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti slasaðan sjómann um borð í Sindra SF-26 um hádegisbilið í dag.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 11:05 og gaf samband við skipið Sindra frá Hornafirði en þar var slasaður skipverji um borð. Hann hafði fallið u.þ.b. 3 metra niður í lest skipsins.
Eftir að læknir í áhöfn TF-LIF hafði fengið upplýsingar um líðan skipverjans var þyrluáhöfnin kölluð út og fór TF-LIF í loftið kl. 11:46. Skipið var þá statt 15 sjómílur suðvestur af Sandgerði.
TF-LIF lenti með skipverjann við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 12:58.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands