
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 16. september 2003.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar heyrðu neyðarkall frá skemmtibátnum Ingu Dís kl. 21:05 í kvöld en báturinn var þá staddur á Þerneyjarsundi. Tilkynnt var að báturinn væri að sökkva.
Áhöfn TF-LIF var nýkomin úr sjúkraflugi til Vestmannaeyja og gat því brugðist skjótt við en þyrlan var komin í loftið kl. 21:23. Stuttu eftir flugtak var tilkynnt að mennirnir hefðu komist upp á pramma og væru úr allri hættu. TF-LIF sveimaði þó yfir svæðinu í 10 mínútur þar til ljóst var að ekki væri þörf á aðstoð.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi