
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 15. nóvember 2003.
Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar í Reykjavík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 6:30 í morgun og óskaði eftir þyrlu vegna manns sem hafði slasast eftir bílveltu í Þjórsárdal. Læknir á slysstað taldi það nauðsynlegt.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið hálftíma síðar eða kl. 7:01. Lent var á Skeiðarvegi kl. 7:22 en þar beið sjúklingur í sjúkrabíl. Lent var við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 7:51.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.