
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 17. nóvember 2003.
Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar kl. 14:52 í dag vegna alvarlega veiks manns í Kárahnjúkavirkjun. Læknir á svæðinu taldi nauðsynlegt að sækja manninn með þyrlu.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út, bráðaútkalli, og fór þyrlan í loftið kl. 15:18. Lent var við Kárahnjúkavirkjun um kl. 16:40. Ákveðið var að flytja manninn til Akureyrar og var lent við fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri kl. 17:28.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.