
Föstudagur 28. nóvember 2003.
Um þessar mundir starfa níu flugmenn hjá Landhelgisgæslunni og um næstu áramót losnar ein staðan þar sem einn flugmaðurinn hættir störfum fyrir aldurs sakir.
Í auglýsingu kemur fram að óskað er eftir þyrluflugmanni. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu. Staðan tilheyrir flugdeild stofnunarinnar og heyrir stjórnunarlega beint undir yfirflugstjóra. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf um næstu áramót.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gilt JAA atvinnuflugmannsskírteini á þyrlu með blindflugsáritun ásamt því að hafa lokið bóklegu ATPL námi. Æskilegt er að viðkomandi sé einnig handhafi atvinnuflugmannsskírteinis á flugvél. Jafnframt skulu umsækjendur hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi. Umsækjendur skulu hafa gott vald á íslensku og ensku.
Launakjör ákvarðast af kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Umsóknum ber að skila til starfsmannastjóra Landhelgisgæslu Íslands, Seljavegi 32, 101 Reykjavík á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á vefslóð Landhelgisgæslunnar. Umsóknum skal skilað fyrir 10. desember 2003. Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Brekkan flugmaður í síma 545-2000.
Nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.