Sjúklingur fluttur með þyrlu frá Rifi til Reykjavíkur

3. janúar, 2004

Laugardagur 3. janúar 2004.


 


Læknir á Ólafsvík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:42 og óskaði eftir að þyrla sækti alvarlega veika konu.  Læknir í áhöfn TF-SIF fékk allar upplýsingar og taldi nauðsynlegt að sækja hana með þyrlu. 


 


Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 12:47 og fór þyrlan í loftið kl. 13:17.  Lent var á Rifi kl. 13:48 þar sem konan beið í sjúkrabifreið og hélt þyrlan af stað með hana til Reykjavíkur kl. 13:59. 


 


Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 14:45 en þaðan var konan flutt með sjúkrabifreið á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.


 


Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlafulltrúi

Fleiri Fréttir