TF-LIF flutti slasaðan sjómann á sjúkrahús

5. janúar, 2004

Mánudagur 5. janúar 2004.


 


Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 22:04 í gærkvöldi og gaf samband við netabát sem staddur var 5 sjómílur vestur af Garðskaga. Þar hafði sjómaður slasast illa á báðum fótum.


 


Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór TF-LIF í loftið 27 mínútum síðar eða kl. 22:31.  Búið var að hífa sjómanninn um borð í þyrluna kl. 23:26 og lenti TF-LIF við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 23:38.


 


Dagmar Sigurðardóttir


fjölmiðlafulltrúi

Fleiri Fréttir