
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 7. janúar 2004.
Læknir á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag og óskaði eftir aðstoð vegna veikrar konu á Tálknafirði sem nauðsynlegt var að flytja á sjúkrahús í Reykjavík. Ekki var hægt að fá sjúkraflug frá Ísafirði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í loftið kl. 15:41 og lenti á Patreksfirði kl. 17:03 en sjúklingurinn hafði verið fluttur þangað með sjúkrabifreið frá Tálknafirði.. Þyrlan fór frá Patreksfirði kl. 17:57 og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:25.
Flugveður var all slæmt og skyggni rysjótt. Norðaustan hvassviðri og mikil úrkoma mest alla leiðina.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlafulltrúi