11. janúar, 2004
Sunnudagur 11. janúar 2004.
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu kl. 17:26 eftir að flugstjórn Flugmálastjórnar tilkynnti stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að Boeing 767-300 farþegaflugvél á leið frá London til Bandaríkjanna hefði lýst yfir neyðarástandi eftir að reykjalykt fannst í farþegarými vélarinnar. Flugvélin lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli kl. 18:22.
Þetta er í annað sinn á 5 dögum sem þyrluáhöfnin er kölluð út vegna farþegaflugvéla sem leið eiga um íslenskt flugstjórnarsvæði. Í fyrra skiptið var lýst yfir neyðarástandi í erlendri farþegaflugvél vegna elds í hreyfli.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlafulltrúi.