
Föstudagur 23. janúar 2004.
Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 22:44 í gærkvöldi og gaf samband við skipverja á togbátnum Kristni Friðrik GK-58 en þar hafði hjartveikur maður fallið í ómegin. Skipið var þá statt út af Dyrhólaey.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór þyrlan í loftið kl. 23:33. Haldið var vestur fyrir Grindavík og þaðan austur um. Frá Grindavík og austur að Þykkvabæ gekk á með þéttum skúrum og eldingum. Vindur mældist 40-45 hnútar og gekk ferðin seint.
Þyrlan var komin að bátnum kl. 00:47 og var ekki talið ráðlegt að hífa sjúklinginn um borð í hana vegna veðurs og sjólags. Var þyrlunni þá flogið til Vestmannaeyja og lent þar kl. 1:08. Þar var beðið eftir bátnum. Hélt þyrlan frá Vestmannaeyjum með sjúklinginn kl. 3:18 og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 3:50. Þaðan var sjúklingurinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.