Slasað barn á Patreksfirði sótt með þyrlu

30. janúar, 2004

Föstudagur 30. janúar 2004.

 

Læknir á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 18 í dag og óskaði eftir þyrlu til að sækja barn sem hafði fengið alvarleg brunasár eftir heitt vatn. 

 

Áhöfn TF-LIF var kölluð út kl. 18:03 og fór þyrlan í loftið frá Reykjavík kl. 18:57. Stjórnstöð upplýsti lögreglu á Patreksfirði um áætlaðan komutíma þyrlunnar svo unnt væri að flytja barnið með sjúkrabifreið á lendingarstað þyrlunnar.

 

TF-LIF lenti á enda brimvarnargarðsins á Patreksfirði kl. 19:55 og þar var barnið flutt um borð í þyrluna í fylgd móður þess. 

 

Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 21:01 en þar beið sjúkrabifreið sem flutti barnið á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.

 

 

 

Fleiri Fréttir