
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 9. febrúar 2004. Læknir á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:30 og óskaði eftir flutningi á bráðveikum sjúklingi sem þurfti að komast sem fyrst á sjúkrahús í Reykjavík. Eftir samráð við lækni í áhöfn TF-SIF var ákveðið að sækja sjúklinginn með þyrlu. TF-SIF fór í loftið kl. 16:26 og lenti rúmri klukkustund síðar í Vestmannaeyjum. Þaðan fór þyrlan kl. 17:50 og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 18:32. Þar beið sjúkrabíll og flutti sjúklinginn á Landspítala Háskólasjúkrahús. Þetta er í annað skiptið á fjórum dögum sem þyrla Landhelgisgæslunnar fer í sjúkraflug til Vestmannaeyja en annar sjúklingur var sóttur þangað síðastliðinn föstudag. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.