
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 16. febrúar 2004.
Læknir á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á laugardagskvöldið og óskaði eftir aðstoð vegna sjúklings sem flytja þurfti á sjúkrahús í Reykjavík. Sjúkraflugvél frá Ísafirði gat ekki flogið til Patreksfjarðar vegna veðurs.
Áhöfn TF-LIF var kölluð út kl. 20:40 og fór vélin í loftið kl. 21:27. Lent var á Patreksfirði kl. 22:27 þar sem sjúklingur var fluttur um borð í þyrluna og fór hún í loftið að nýju kl. 22:36. Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 00:15 á sunnudag og var sjúklingur fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.