
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 20. febrúar 2004.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:39 í dag og tilkynnti um alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum sunnan við Bifröst. Tveir jeppar höfðu skollið saman með þeim afleiðingum að tvær ungar stúlkur létust og fleiri slösuðust.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór hún í loftið kl. 15:55. Þyrlan lenti á slysstað kl. 16:13 og voru fimm manns sem lent höfðu í slysinu fluttir til Reykjavíkur. Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 16:58.
Áhöfn TF-SIF, minni þyrlu Landhelgisgæslunnar, var einnig kölluð út en hætt var við flugtak þegar nánari upplýsingar bárust frá slysstað sem gáfu til kynna að ekki væri þörf fyrir hana.
Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.