Skipstjóri dragnótarbáts staðinn að meintum ólöglegum veiðum með of smáa möskva

26. apríl, 2004

Mánudagur 26. apríl 2004.


Við rannsókn löggæslumanna varðskipsins Ægis um borð í dragnótarbát um helgina kom í ljós að möskvar dragnótarinnar voru of smáir.  Skipstjóra var gert að halda til hafnar í Grindavík þar sem lögregla hélt rannsókn málsins áfram.  Sýslumaðurinn í Keflavík tekur ákvörðun framhald málsins. 


Þetta er í annað skipti á einni viku sem löggæslumenn á varðskipinu Ægi færa skip til hafnar vegna ólöglegra veiðarfæra.  Fyrra málið er til meðferðar hjá sýslumanninum á Höfn í Hornafirði.


Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir