
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 9. maí 2004.
Læknir í Vestmannaeyjum hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17:23 og óskaði eftir aðstoð vegna bráðveikrar stúlku sem þurfti að flytja á sjúkrahús í Reykjavík. Læknirinn taldi ekki fært að flytja stúlkuna með sjúkraflugvél.Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 17:24 og fór þyrlan í loftið kl. 17:49. Lent var á flugvellinum í Vestmannaeyjum kl. 18:17. Tíu mínútum síðar hélt þyrlan aftur af stað til Reykjavíkur með sjúklinginn og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 18:59. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.