
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 9.maí 2004.
Læknir á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:04 og óskaði eftir aðstoð vegna hjartveiks manns sem þurfti að komast á sjúkrahús í Reykjavík. Ástand hans var þannig að ekki þótti fært að flytja hann með sjúkrabíl.Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 12:07 og fór þyrlan í loftið kl. 12:36. Í millitíðinni var þyrlulæknir í sambandi við lækninn í Stykkishólmi til að fá upplýsingar um ástand sjúklingsins. TF-SIF lenti í Stykkishólmi kl. 13:06 og var komin aftur til Reykjavíkur kl. 13:55. Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar og þar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.