
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 19. maí 2004.
Læknir á Ólafsvík hafði samband gegnum Neyðarlínuna og óskaði eftir þyrlu til að flytja hjartveikan mann á sjúkrahús í Reykjavík. Eftir að læknir í áhöfn TF-SIF hafði fengið upplýsingar um ástand mannsins kl. 11:49 var ákveðið að kalla út áhöfn þyrlunnar.
TF-SIF fór í loftið kl. 12:33 og lenti á Rifi kl. 13:12 þar sem sjúkrabíll beið með manninn. Tíu mínútum síðar hélt þyrlan aftur af stað til Reykjavíkur og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 13:57. Þar beið sjúkrabíll sem flutti manninn á Landpítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.