
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 6. júní 2004.Í dag sótti þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, mann sem lent hafði í snjóbrettaslysi áSnæfellsjökli. Talið er að hann hafi orðið fyrir bakmeiðslum.Læknir á Ólafsvík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:24 og óskaðieftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Hann var sjálfur á leið á slysstað.Vegna meiðsla mannsins var ekki talið ráðlegt að flytja hann landleiðina á sjúkrahús. TF-LIF fór í loftið kl. 13:33 og var komin til Reykjavíkur með hinn slasaða kl. 14:35.Hann var fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.