Skipstjórar vanrækja að hlusta á neyðarbylgju á rás 16 – Öryggi sjófarenda ábótavant af þeim sökum

4. júlí, 2004

Laugardagur 3. júlí 2004


Umhugsunarefni er hversu margir skipstjórar láta hjá líða að hlusta á rás 16, sem er neyðarbylgja fyrir skip og báta og öllum sjófarendum ber skylda til að hlusta á.  Óhætt er að segja að það dragi verulega úr öryggi sjófarenda.Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar urðu þess varir rétt fyrir kl. þrjú í gærdag að verið var að grennslast fyrir um sómabátinn Eskey og nærstaddir bátar beðnir um að veita upplýsingar um ferðir hennar.  Varðstjórarnir höfðu þegar samband við Tilkynningarskylduna og þá kom í ljós að Eskey hafði dottið út úr tilkynningarskyldukerfinu um kl. 11:41 og tilraunir til að ná sambandi við bátinn höfðu ekki borið árangur.  Síðast var vitað um bátinn 19 sjómílur norðvestur af Rifi á Snæfellsnesi.Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð kl. 15 og fór TF-SIF í loftið hálftíma síðar.  Þá var björgunarbáturinn Björg frá Ólafsvík einnig á siglingu í átt að svæðinu.  Er þyrlan kom á svæðið þar sem síðast var vitað um Eskey sáust nokkrir smábátar að veiðum.  Tilkynningarskyldan hafði þá óskað eftir því við báta á svæðinu að þeir hæfu leit en ekkert fararsnið var á þessum bátum.  Í ljós kom að Eskey var einn þessara báta.Eftir að þyrlan hafði sveimað yfir Eskey skamma stund hafði skipverji á honum samband gegnum talstöð og spurðist fyrir um hvort verið væri að leita að honum, sendirinn fyrir sjálfvirka tilkynningarskyldukerfið væri dottinn út vegna bilunar.  Í ljós kom að skipverjar á Eskey höfðu ekki opna rás 16, sem er neyðarbylgja sem öllum skipum og bátum ber að hlusta á. Sama máli virtist gegna um aðra nærstadda báta.


Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir