
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 18. júlí 2004.
Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 6:25 og lét vita að lögreglan óskaði eftir þyrlu vegna manns sem hafði sést stinga sér til sunds frá Sæbraut. Talið var að hann synti í átt að Engey en ekki sást til hans lengur.
Þyrluáhöfn var þegar kölluð út með bráðaútkalli. Um 10 mínútum síðar var beiðni um þyrlu afturkölluð þar sem lögreglan hafði fundið manninn.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.