
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 4. ágúst 2004.
Landhelgisgæslunni barst ósk frá tryggingafélagi togarans Stjörnunnar í dag um að draga skipið út úr slippnum í Hafnarfirði. Sjósetning skipsins hafði mistekist er dráttarsleði fór út af sporinu í slippnum.
Varðskipið kom til Hafnarfjarðar seinnipartinn og þá var hafinn undirbúningur fyrir verkið. Ákveðið var að hefjast handa kl. 21 um kvöldið á háflóði. Aðgerðin heppnaðist mjög vel og fljótlega rann skipið hindrunarlaust í sjóinn. Engar skemmdir voru sjáanlegar á togaranum.Hafnsögubátar í Hafnarfirði drógu Stjörnuna síðan að bryggju þar sem dráttartaug varðskipsins var losuð. Varðskipið gat þá haldið til hafs til annarra starfa.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.