
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 17. ágúst 2004.
Reykjavíkurradíó sendi út tilkynningu til skipa á norðanverðum Faxaflóa um kl. 15:27 í dag vegna handfærabátsins Smára HF-122 sem hafði dottið út úr sjálfvirka tilkynningarskyldukerfinu. Tilkynningarskyldan hafði þá árangurslaust reynt að ná sambandi við bátinn. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út og fór TF-SIF í loftið kl. 16:19. Skömmu síðar fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um að báturinn hefði komið í leitirnar og sneri þyrlan þá aftur til Reykjavíkurflugvallar.
Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.