
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 15. september 2004
Tilkynningarskyldan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:21 og tilkynnti að tveir fiskibátar hefðu horfið út úr sjálfvirka tilkynningarkerfinu og ekkert samband næðist við þá. Þetta voru bátarnir Ólafur HF-251 og Ólafur HF-200. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út og var TF-SIF reiðubúin til flugs þegar tilkynning barst um að bátarnir hefðu fundist. Þeir höfðu siglt 60 sjómílur út af Reykjanesi og voru því komnir út fyrir farsvið sitt, þ.e. það hafsvæði sem leyfilegt er miðað við þann fjarskiptabúnað sem er um borð í bátunum.
Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.