
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 30. september 2004.
Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:56 og gaf samband við lögregluna á Selfossi. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu vegna alvarlegs umferðarslyss við Vaðnesafleggjarann í Grímsnesi. Tveir bílar höfðu skollið saman.Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út. Þyrlan fór í loftið kl. 16:11 og var komin á slysstað kl. um kl. 16:30. Ökumaður annars bílsins var fluttur með þyrlunni en tveir aðrir slasaðir voru fluttir með sjúkrabíl.
TF-LIF lenti við slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss kl. 17:05.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.