
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 10. október 2004.Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 11:10 og tilkynnti um alvarlegt umferðarslys í Þjórsárdal suður af bænum Skriðufelli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Bíll með sjö manns innanborðs hafði oltið. Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út, með bráðaútkalli.TF-LIF fór í loftið kl. 11:36 og var komin á staðinn kl. 12:.07. Þá var ökumaður bílsins og einn farþegi látinn. Þrír slasaðir höfðu verið fluttir með sjúkrabíl en tvö voru flutt með þyrlunni á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Þyrlan lenti þar kl. 12:53.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.