
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 14. desember 2004.
Flugöryggissvið flugmálastjórnar samþykkti í dag flugrekstrarhandbók Landhelgisgæslunnar sem hefur verið í smíðum sl. þrjú ár. Að sögn Björns Brekkan flugrekstrarstjóra Landhelgisgæslunnar eru í flugrekstrarhandbók m.a. verklagsreglur um starfsemi og rekstur flugdeildar, vinnu- og hvíldartíma og þjálfun áhafna. Að hans mati er þetta stór áfangi í átt til aukins öryggis í rekstri flugdeildar stofnunarinnar.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.