
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 17. desember 2004.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um kl. 11:15 og tilkynnti um hjartveikan mann um borð í bátnum Sigrúnu RE-303 en báturinn var þá á Faxaflóa, 14 sjómílur frá Reykjavík. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út, með bráðaútkalli, og fór TF-LIF í loftið kl. 11:34. Er þyrlan kom að bátnum fór sigmaður niður í hann og gekk vel að hífa sjúklinginn um borð í þyrluna. TF-LIF lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús kl. 12:04.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.