
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 30. desember 2004.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 13:54 og lét vita af bílslysi á Holtavörðuheiði en þar hafði bíll ekið aftan á annan bíl. Barnshafandi kona var í öðrum bílnum og var sjúkrabíll með lækni og ljósmóður á leiðinni. Beðið var um þyrlu í viðbragðsstöðu. Læknir í þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var í sambandi við lækninn í sjúkrabílnum og var talið rétt, með hliðsjón af upplýsingum um líðan konunnar, að bíða með að senda þyrluna af stað. Þyrluáhöfn var samt sem áður í viðbragðsstöðu þar til sjúkrabíllinn kom á staðinn og læknirinn hafði metið ástand konunnar.