Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjartveikan mann til Stykkishólms

17. janúar, 2005

Mánudagur 17. janúar 2005.


Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti hjartveikan mann til Stykkishólms í dag og flutti hann til Reykjavíkur.


Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:48 og gaf samband við lækni í Stykkishólmi en hann var með hjartveikan sjúkling sem þurfti nauðsynlega að komast á sjúkrahús í Reykjavík. Í framhaldi af því, kl. 12:54, var áhöfn TF-LIF kölluð út og í samráði við lækni í áhöfn þyrlunnar var ákveðið að sækja sjúklinginn.


TF-LIF fór í loftið kl. 13:26.  Bjart veður var í Stykkishólmi og gekk flugið vel.  Þyrlan lenti á flugvellinum þar kl. 13:57.  Læknir og stýrimaður úr áhöfninni fóru á sjúkrahúsið á staðnum til að aðstoða við að undirbúa sjúkling fyrir flutning og fór þyrlan aftur í loftið frá Stykkishólmi kl. 14:37.  TF-LIF lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 15:17 en þar beið sjúkrabíll og neyðarbíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eftir sjúklingnum.  Hann var fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.


Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.


 


 

Fleiri Fréttir