
Miðvikudagur 26. janúar 2004.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan sjómann um borð í togarann Gideon síðdegis í dag.Skipstjórinn á Gideon, sem er íslenskur, hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:29 og tilkynnti að einn skipverjanna, litháenskur maður, hefði slasast og óskaði eftir að hann yrði sóttur með þyrlu og fluttur á sjúkrahús. Gideon var staddur 135 sjómílur austsuðaustur af Vestmannaeyjum er beiðni um aðstoð barst og var skipstjórinn beðinn að sigla til móts við þyrluna.
Þyrlan kom til Vestmannaeyja um kl. 18 og tók eldsneyti og lenti síðan við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:05.Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.