
Föstudagur 28. janúar 2005.
Fulltrúi Eimskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 20:25 og óskaði eftir aðstoð vegna flutningaskipsins Dettifoss en skipið var þá stýrisvana 8 sjómílur austur af Eystrahorni. Óskað var eftir að varðskip kæmi til hjálpar.
Varðskip Landhelgisgæslunnar verður hjá Dettifossi um kl. 22 og þá er fyrirhugað að byrja á að kanna hvort stýrisblað er dottið af skipinu eða hvort eitthvað annað veldur því að skipið lætur ekki að stjórn. Ef ekki verður hægt að lagfæra bilunina mun varðskipið draga Dettifoss til hafnar á Eskifirði.
Ekki er talið að Dettifoss sé í bráðri hættu enda rekur skipið í átt frá landi. Dettifoss var á leið frá Reykjavík til Eskifjarðar en skipið er notað til gámaflutninga milli Íslands, Færeyja og annarra Evrópulanda.
Reiknað er með að varðskipið Týr þurfi að draga Dettifoss um 50 sjómílur til Eskifjarðar en ekki er vitað hvenær skipin koma þangað. Nú sem stendur er suðvestan rok á svæðinu og mikill sjór.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.