Sjúkraflug TF-LIF og TF-SYN í togarann Guðmund í Nesi – skipverji illa slasaður á hendi

31. janúar, 2005

Mánudagur 31. janúar 2005.


 


Skipstjórinn á togaranum Guðmundi í Nesi kl. hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 16:42 og óskaði eftir aðstoð vegna skipverja sem er illa slasaður á hendi.  Honum var strax gefið samband við lækni í áhöfn TF-LIF.  Þegar læknirinn hafði fengið upplýsingar um ástand slasaða skipverjans var ákveðið að sækja hann með þyrlu. Skipið var þá statt 165 sjómílur vestur af Reykjavík og var skipstjórinn beðinn að sigla á fullri ferð til móts við þyrluna.


 


Áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út ásamt áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar.  Nauðsynlegt var að þyrlan fengi fylgd flugvélarinnar öryggisins vegna þar sem þyrlan þurfti að fara út fyrir drægi TF-SIF, minni þyrlu Landhelgisgæslunnar, og skyggni var lélegt.


 


TF-SYN fór í loftið kl. 17:35 og TF-LIF kl. 1748.  Laust eftir kl. 19 kom þyrlan að skipinu og var lokið við að hífa sjúklinginn um borð í þyrluna hálftíma síðar. 


TF-SYN og TF-LIF eru nú á leið til Reykjavíkur og er áætlað að þyrlan og flugvélin verði þar á níunda tímanum í kvöld.


 


Dagmar Sigurðardóttir


fjölmiðlaftr.


 


 

Fleiri Fréttir