
Fimmtudagur 3. mars 2005.Meðfylgjandi myndir voru teknar nýlega úr danska varðskipinu Triton er áhöfn þess hélt sameiginlega æfingu með flugdeild Landhelgisgæslunnar. Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar tóku þátt í æfingunni. Áhöfn TF-LIF æfði eldsneytistöku frá varðskipinu en það er nokkuð vandasöm aðgerð sem þarfnast mikillar nákvæmni. Það getur gert gæfumuninn ef slys á sér stað í mikilli fjarlægð frá landi að þyrlan geti tekið eldsneyti frá skipi. Ekki er aðstaða til þess í varðskipunum Ægi og Tý.Áhöfn TF-SIF æfði aðflug og lendingu á þyrlupalli Triton. Lending tókst vel þrátt fyrir talsverðan velting á skipinu. Forstjóri ásamt þremur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar var í boði skipherra Triton um borð í skipinu og sá áhöfn TF-SIF um að flytja þá til Reykjavíkur að æfingu lokinni. Um borð í skipinu fengu Landhelgisgæslumenn fræðslu um hlutverk varðskipsins Triton og verkefni. Eins og endranær eru Tritonmenn reiðubúnir til samvinnu við Landhelgisgæsluna á sem flestum sviðum. Sérstakur samningur er einnig til staðar um samstarf Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins á sviði leitar- og björgunarmála. Á annarri myndinni eru báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar á flugi yfir skipinu en það er nokkuð sérstakt að ná mynd af þeim báðum í einu á flugi. Hin myndin sýnir TF-LIF í hangflugi yfir Triton á meðan verið var að dæla í hana eldsneyti frá varðskipinu.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.

