Banaslys á Þrengslavegamótum – TF-LIF sótti fjóra slasaða og flutti á sjúkrahús

6. mars, 2005

Sunnudagur 6. mars 2005.Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í morgun fjóra slasaða á Landspítalann í Fossvogi eftir árekstur tveggja bíla á Þrengslavegamótum. Einn maður lést í slysinu.


Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 6:57 og tilkynnti um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegamótum.  Tveir bílar, báðir með fimm manns innanborðs, höfðu rekist saman og var áreksturinn mjög harður. Óskað var eftir þyrlu strax.


Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór þyrlan í loftið kl. 7:18.  Hún lenti við slysstaðinn kl. 7:25.  Einn maður var úrskurðaður látinn á slysstaðnum en fjórir voru fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur. Hún lenti þar kl. átta í morgun. 


Auk áhafnar TF-LIF var sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins með í þyrlunni til aðstoðar.Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir