
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 10. mars 2005.Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 13:13 og tilkynnti að skipverji um borð í mótorbátnum Hauki EA-76 hefði slasast á fæti. Óskað var eftir þyrlu til að sækja hann. Báturinn var þá staddur um 12 sjómílur vestur af Stafnesi á Reykjanesi.
Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar er flughæf í dag. TF-SIF er í 500 tíma skoðun en TF-LIF bilaði í gær. Þess vegna hafði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar samband við Varnarliðið og óskaði eftir aðstoð. Þyrla Varnarliðsins var búin að hífa hinn slasaða upp úr bátnum kl. 14:30 og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 14:50.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.