TF-SIF sótti slasaðan hestamann

14. mars, 2005


Mánudagur 14. mars 2005.


Neyðarlínan tilkynnti kl. 18:23 að maður hafi slasast er hann féll af hestbaki í Vík í Mýrdal. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu.  Skömmu síðar hringdi læknir frá Vík og óskaði eftir að maðurinn yrði sóttur þar sem hann var mikið slasaður.


Áhöfn, TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 18:29 og fór hún í loftið kl. 18:47.  Var maðurinn fluttur í sjúkrabíl á móti þyrlunni og lenti TF-SIF á Hvolsvelli kl. 19:13.  Þar var maðurinn fluttur úr sjúkrabílnum yfir í þyrluna og lenti hún við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:45.


Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir