TF-LIF sótti slasaðan mann á Snæfellsnesi

26. mars, 2005

Laugardagur 26. mars 2005.


 


Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17:15 og tilkynnti að maður hefði orðið undir beltabíl við Gufuskála á Snæfellsnesi. Talið var að maðurinn væri hryggbrotinn. 


 

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var þegar kölluð með bráðaútkalli og fór hún frá Reykjavíkurflugvelli kl. 17:38.  Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var í sambandi við lögregluna á Ólafsvík.  Á staðnum var hægviðri, alskýjað og lágskýjað og kom TF-LIF á vettvang kl. 18:10.  Þyrlan lenti með hinn slasaða við Landspítala Háskólasjúkrahús kl. 19.Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir